19október

Játning

Jæja gott fólk ég þarf að koma með játningu.  Það var líka hlerað síminn hjá mér.  Man oft eftir því þegar ég var lítill málmhljóðin og skellirnir í símanum þegar var verið að hlusta.  Ég er viss um að þetta voru sovétríkin.  Þau voru að fylgjast með pólitískum andstæðingi.  Svona er heimurinn ekki eins saklaus og hann þykist vera!

Mér finnst eitt skrýtið.  Eitthver ákveðinn hvalastofn er 45000 þúsund stykki.  Við erum að veiða 30+ í mesta lagi.  Og það á að hafa áhrif hvernig? Er fólk þroskaheft að nota þessar ástæður sem ástæður fyrir að veiða ekki.  Mun nær að nota aðrar ástæður.  Til dæmis að það er erfitt að veiða stóran hval.  Og aðferðirnar við að veiða hann eru að skjóta hann með skutli.  Það er ekkert annað spendýr kvalið svona ímynda ég mér þegar því er slátrað.  Það er kannski það sem fer svona fyrir brjósti á fólki.  Mér er svosum sama hvort við veiðum hvað.  Ekki borða ég þetta.  Hef smakkað og það var ekki gott.  En finnst reyndar dáldið svalt að standa uppí alþjóðasamfélaginu og gera bara það sem okkur sýnist.  Þess vegna styð ég þetta eiginlega.

19. október 2006 klukkan 23:51
Egill Axfjörð Friðgeirsson
Engin athugasemd
04október

Geðlyf óþarfi?

Nei hættu nú alveg Jóhanna mín.  Það ætti að reka þig úr sjálfstæðisflokknum fyrir þetta illa unna innskot í kastljósinu.   Ekki góð rannsóknarblaðamennska að mínu mati.  T.d. hvar er samanburðarhópurinn? Ef að geðlyf auka fjölda öryrkja af völdum geðsjúkdóma.  Hvaða áhrif hafa þá engin geðlyf á fjölda öryrkja af völdum geðsjúkdóma?   Þetta er dáldil óvirðing að halda þessu svona fram miðað við að fullt af geðsjúku fólki getur lifað sem næst venjulegu lífi þökk sé geðlækningum.  Að kenningin um boðefnajafnvægið hafi hrunið 1992? Plz reynið að kynna ykkur máli áður en þið farið að staðhæfa eitthvað eftir eitthverjum iðjuþjálfum og blaðamönnum á washington post.  Svo ég tali nú ekki um alþjóðapólitíkusinn hjá WHO. 

Bottom line.  Mjög erfitt að skilja heilann.  EN  geðlyf hafa sýnt það að þau virka á ákveðna sjúkdóma.  Þess vegna eru þau notuð.  Jú þau hafa margar aukaverkanir.  En bæta engu að síður lífskjör þessara einstaklinga.
04. október 2006 klukkan 00:56
Egill Axfjörð Friðgeirsson
2 athugasemdir
01október

Kleppur leynist víða

Já kleppur leynist víða. Það var einu sinni ein ágæt kona. Sem var gift tannlækni á tímabili en skildi við hann. Hún átti mörg góð börn og var í tygjum við landsfrægan íþróttamann á tímabili. Hvar er hún núna. Flakkaði milli geðdeilda og endaði illa. Já kleppur leynist víða.

Einu sinni var stelpa sem fór á djammið. Hún hitti rosalega hressan strák sem var rosalega skemmtilegur og djammaði með honum alla nóttina. Næst þegar hún rakst á hann var hún að heimsækja ættinga á geðdeild. Hann heyrði raddir og var snargeðveikur.

Það er sumt sem maður saknar
vöku megin við
leggst út af á mér slokknar
svíf um önnur svið
í svefnrofunum finn ég
sofa lengur vil
þegar svefninn verður eilífur
finn ég aldrei til
01. október 2006 klukkan 05:36
Egill Axfjörð Friðgeirsson
1 athugasemd
20september

Vinir

Það er þannig að ég hef átt frekar erfitt þetta ár.  Og á tímum þar sem maður á erfitt þá er eitt sem maður uppgötvar.  Það er ótrúlega gott og líklega eitt það besta í heimi að eiga góða að.  Það sem hefur haldið mér gangandi, tæplega þó, eru vinir mínir.  Þeir eru búnir að styðja mig vel og standa við bakið á mér.  Langar bara að láta ykkur vita, ef þið lesið þetta, að þið eru bestu vinir í heimi og ég veit ekki hvað ég myndi gera án ykkar.  Elska ykkur alla með tölu. 
20. september 2006 klukkan 03:12
Egill Axfjörð Friðgeirsson
2 athugasemdir
25ágúst

Skólinn

Já skólinn bara byrjaður á fullu.  Menningarnótt var ágæt bara.  Var edrú alla nóttina. 

Fínt að komast aftur í skólann.  Fara að nota heilann á sér aftur við eitthvað uppbyggilegt.  Var á staffadjammi líka seinustu helgi og vá hvað það endaði í miklu rugli.  Allavega af minni hálfu.  Var nú dáldið ölvaður.  Er einmitt að fara í óvissuferð núna með skólanum þannig ég blogga meira seinna ;)
25. ágúst 2006 klukkan 21:12
Egill Axfjörð Friðgeirsson
2 athugasemdir
16ágúst

Heimkomur

Jej :D fanney er að koma heim í nótt!!! vá mig hlakkar til að fá hana heim! hún er fkn yndið mitt.  Og svo kemur mex í næstu viku.  Alltaf gaman að fá fólk sem manni þykir vænt um til sín! Er í góðu skapi.  En er farinn að sofa
16. ágúst 2006 klukkan 04:38
Egill Axfjörð Friðgeirsson
1 athugasemd
04ágúst

bloooogg

Jæja þar kom að því. Nenni að blogga núna.

Ekki búið að gerast mikið nema vinna uppá síðkastið. Jú hvernig læt ég! Útileigan með steinari og pétri og fleirum :p Geggjað stuð! Því verður seint gleymt. Og já valur sorrý að ég skallaði bílinn þinn :p

Svo er maður bara búinn að vera að vinna og svona. Fanney vinkona fór út á þriðjudaginn. Vá ég sakna hennar! Held ég hafi bara aldrei saknað neinnar manneskju svona mikið. Æji veit það ekki. Kemur svosem ekkert á óvart. Hún er náttúrulega langbesta vinkona mín í öllum heiminum og skiptir mig svo ótrúlega miklu máli. Maður er eyðilagður hérna heima án hennar og hennar húmors ;)

Verslunarmannahelgin bara að koma. Ég verð í bænum. En edrú mun ég ekki vera. Hef ekki byrgt mig svona upp af áfengi lengi. Jahh eða bara aldrei. Á nóg áfengi til að fylla svona 20-30gellur. En það nægir bara til að gera skemmtanastjórann minn léttan! Og er það ekki málið eða?

En já hef ekki mikið að segja. Er að fara að grilla lambalundir og svona. Í þessu fokk ógeðslega veðri. Ætla svo að hlaða mig upp núna að það er ekki einu sinni fyndið. Já er farinn núna. Bless
04. ágúst 2006 klukkan 00:44
Egill Axfjörð Friðgeirsson
2 athugasemdir
18júlí

Þessi á skilið að fá einn bud

Mánudagurinn kominn og helgin runnin sitt skeið.  Ágætis helgi og hitti fólk sem ég hitti sjaldan sem var mjög fínt.  Var að koma heim úr ræktinni og sit hérna með einn öl í hendi til að ná mér niður fyrir svefninn.  Ætla að fara að taka vel á því í ræktinni núna.  Verð orðinn góður fyrir næsta sumar.  Þessi bjór er nú bara ágætur sko.  Eitthvað amerískt sem ég fékk gefins í dag. 

Var að horfa á boondock saints í gær.  Góð mynd.  Veltir upp ágætis spurningu.  Er réttlætanlegt að drepa glæpmenn.  T.d. morðingja og nauðgara og svona.  Eða erum við öll bara mannleg og gerum hroðaleg mistök af og til.  Allavega sum okkar.  Auga fyrir auga?  Eða skilorð fyrir auga?  Hvað finnst ykkur?
18. júlí 2006 klukkan 02:41
Egill Axfjörð Friðgeirsson
2 athugasemdir
15júlí

Friday night

Jæja juventus og fleiri dæmd niður í aðra deild fyrir spillingu.  En ekki ac milan.  Spurning hvort það tengist Berlusconi eitthvað.  Hann er náttúrulega skuggalega valdamikill og eitthvað tengdur mafíunni.  Svona er lífið.  Ef maður svindlar kemur það í bakið á manni.

Var að koma heim úr vinnunni og vá hvað það var erfitt.  Svaf ekki nema tvo tíma og vaknaði sjö og byrjaði á því að þamba fjóra kaffibolla.  Svo þegar ég kom í vinnunna varð ég veikur.  Fékk eitthvern vott af ælupest.  Svo þurfti ég auðvitað að drusla 150kg kassa niður af annarri hæð aleinn.  Sem var ógeðslega erfitt og lá við að það liði yfir mann eftir það.  Svo átti þetta að verða svo stuttur dagur en varð alltof langur.  Föstudagar eiga ekki að vera svona langir! Gat ekki einu sinni farið í ríkið var svo lengi.  Spurning hversu miklu maður nennir í kvöld.  En það er bara einu sinni föstudagskvöld... í hverri viku þannig maður lætur sig hafa það.  Er að pæla í að fara að shina mig eitthvað og plana kvöldið
15. júlí 2006 klukkan 00:54
Egill Axfjörð Friðgeirsson
Engin athugasemd
10júlí

Ítalía

Jæja ítalirnir tóku þetta í hreint mögnuðum leik.  Ég ákvað að styðja þá í leiknum og er nokkuð ánægður með þá ákvörðun.  En hvað var Zidane að spá.  Setti eitthver kókaín í morgunkornið hans eða? 

Djamm í gær.  Kominn tími til sko! En er hálfþunnur og að fara að sækja mér pezzu þannig er farinn.  Seinna
10. júlí 2006 klukkan 02:38
Egill Axfjörð Friðgeirsson
1 athugasemd

Könnun

Á að skella sér á írska daga?

Auglýsing